Erum við aumingjar eða eymingjar?

Er óánægður með að það skuli aðeins þrjú þúsund manns mæta á samstöðufundinn. Hefði viljað sjá þessa tölu alla vega þrefalda.  Enda er verið að reyna að þröngva upp á okkur þrælssaamning sem mun binda okkur í báða fætur næstu áratugina.  Og ekki bara okkur, heldur börnin okkar líka.

Reyndar finnst mér að svona fundir eigi að vera um helgar en ekki á virkum dögum. Það býr ennþá stór hluti af þjóðinni úti á landi ef ske kynni að Egill Ólafs og félagar vita það ekki !!  Við gætum mætt um helgar en við erum að vinna í miðri viku. 

Lygar og ómerkilegheit núverandi ríkisstjórnar varðandi þennan samning eru með ólíkindum.  Ég eiginlega átta mig ekki á hvaða málstað Jóhanna og Steingrímur eru að verja.  Alla vega ekki minn málstað.  Þau tala eins og ekkert annað komi til greina en að samþykkja þennan samning.  Og hvað gerist í kjölfarið?  HLUSTIÐ á þá sem hafa reynslu af slíkum samningum.  

Ég hef það á tilfinningunni að eitthvað meira búi að baki.  Við erum ekki búinn að heyra allan sannleikann í málinu.  Þess vegna lítur Steingrímur Joð út eins og eymingi í öllum viðtölum, ekki eins og sá vígmóði rauðskeggjaði víkingur sem Íslendingum líkaði svo vel við hér fyrir nokkru. 

Aumingja Jóhanna.  Þetta er svo erfitt verkefni.  Aumingja Jóhanna, hún tekur við á svo erfiðum tímum. Aumingja Jóhanna, hún er í vonlausri stöðu.  Aumingja, aumingja, aumingja.  

Verður kannski niðurstaðan:  Jóhanna aumingi?


mbl.is 3000 á samstöðufundi InDefence
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð grein hjá þér staðreindin er sú að Jóhanna er aumingi og  það sem meira er að hún er enginn leiðtogi það heirist ekkert í henni nema aumingja ég og það er ekki það sem þjóðin þarf í dag hún þarf hvattningu

Gobbi (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband