Einn af kostum þess að búa í Vestmannaeyjum er hversu snjólétt er hér yfir vetrarmánuðina. Undantekningin sem sannar regluna er akkúrat núna. Þvílíkt og annað eins. Hér sitjum við fjölskyldan innilokuð upp á Smáragötu og komumst ekki neitt.
Vindáttin er þannig að það fýkur upp að hurðinni. Á tröppunum hér fyrir utan er hátt í tveggja metra hár skafli. Það hefur ekki sést bíll á ferð hér í efri byggð í allan dag, enda kæmist sá bíll ekki langt. Lánsbíllinn sem við erum á er kominn á kaf.
Sá fáheyrði atburður gerðist að messufall varð í Landakirkju. Það tekst ekki að koma fólki til og frá vinnu á Sjúkrahúsinu. Björgunarfélagið kemst ekki leiðar sinnar.
Og enn er að snjóa.
Í ágætu bloggi Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings síðan í morgun kemur fram að Óskar og félagar upp á Stórhöfða hafi mælt 50 sm snjódýpt klukkan 9 í morgun. Það hefur snjóað mikið síðan...
Hvar endar þetta eiginlega...
Myndin var tekin út um útidyrnar hjá okkur, lengra komst ég ekki.
Færsluflokkar
Tenglar
Heimsótt reglulega
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 673
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já Svenni minn.Ég sé ekki einu sinni yfir til ykkar 20 m frá.Kveðja frá nágranna.
Ragna B (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 16:09
Sæl Ragna - Já, þetta er rosalegt, spurning hvenær verður rutt hjá okkur hér í efri byggð ?
Sigursveinn , 2.3.2008 kl. 18:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.