Varúð til vinstri

Ég segi nú eins og margur annar. Eru menn ekki að grínast?  Netlögga?  Það boðar nú foringi VG, hann vill setja á stofn netlöggu sem fylgist með umferð fólks á netinu. Er þetta sami rauðhærði þingmaðurinn og hélt nokkrar þrumuræðurnar yfir leynilögregluáformum Björns Bjarna?  Það bara getur ekki verið...

Eins vill hann taka af fólki rétt til þess að ráða þá sem það telur hæfast til setu í stjórnum fyrirtækja. Hann vill líka taka réttinn af fólki sem kýs. Það á að jafna allt út. Femínistinn Steingrímur J. Sigfússon vill að ríkið ákveði fyrir stjórnendur fyrirtækja og fólkið í landinu hverjir sitja stjórnarfundi og hverjir setja lög.  Það skal vera fifty/fifty, konur og karlar. Er þetta ekki gengið fulllangt? 


Eru fáir sjónvarpsvænir álitsgjafar á Íslandi í dag?

Horfði á Silfur Egils í gær þar sem helst bar til tíðinda að Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður og varaþingmaður sagði sig úr Samfylkingunni í beinni.  Það virðist vera orðin hefð fyrir því að segja sig úr Samfylkingunni hjá Agli en nýverið gerði Valdimar Leó þingmaður það líka og gaf Agli barmmerkið sitt við það tilefni.

Athyglisvert með hann Jakob, hann hefur farið í nokkur prófkjör og ekkert gengið hjá Samfylkingunni, nú líður honum allt í einu illa í flokknum. Segist hafa þurft að fylgja flokkslínunni í atkvæðagreiðslu í eina skiptið sem hann settist á þing. Greiddi atkvæði gegn skattalækkunum og leið illa. Samt fór hann í prófkjör fyrir flokkinn fyrir nokkrum mánuðum síðan, tveimur árum eftir sálarkreppuna ógurlegu á Alþingi.  Einhvern veginn hefur mér fundist meira framboð en eftirspurn eftir Jakobi Frímann undanfarið, spurning hvar hann endar í ár?

Silfur Egils er að flestu leyti afskaplega góður sjónvarpsþáttur en þó er mér farið að leiðast að sjá þarna sömu andlitin sunnudag eftir sunnudag. Ég trúi ekki öðru en það séu til fleiri sem hægt væri að bjóða í þáttinn. 


Um móðursjúka þjóð

Það hefur bæði verið sorglegt og hlægilegt að fylgjast með umræðum um fyrirhugaða ráðstefnu SnowGathering undanfarna daga. Fólk sem vinnur í klámiðnaðinum ætlaði semsagt að hittast til skrafs og ráðagerða á litla Íslandi nú í mars. Og þjóðin fór á hliðina.

Fólkið ætlaði sér að halda ráðstefnu í bændahöllinni en eru ekki velkomnir þangað lengur. Er úthýst vegna atvinnu sinnar.  Ætli gestir hótelsins megi búast við því héðan í frá að atvinna þeirra verði athuguð um leið og pantað er herbergi?  Eins er alveg kostulegt að sama hótel og setur sig á þetta háan hest græðir svo peninga á því að selja hótelgestum aðgang að klámefni !!  Hvað er að? Þvílík hræsni.

Feministar hafa gengið hart fram í málinu og verið öflugar í baráttu sinni. Hins vegar hefur röksemdarfærsla þeirra verið fyrir neðan allar hellur. Líkja þessu við fíkniefnasmygl og vopnasölu. Segja þetta jafngilda því að fíkniefnasalar hittist og beri saman bækur sínar.  Eitt veigamikið atriði gleymist í allri þessari móðursýki. Hvað sem fólki finnst um þennan bransa þá er hann löglegur í þeim löndum sem þetta fólk starfar. 

Svo gengu þau enn lengra og ýjuðu að því að mansal væri stundað af þessu fólki. Það er svolítið athyglisvert að hér á landi lýðst það að fólk getur sagt slíka hluti án þess að hafa neitt fyrir sér og komist upp með það.  Þarna vantar grimmd í fréttamenn, krefjast sannana, hvað hafa þau fyrir sér í þessu, er rétt að leyfa þeim komast upp með að drulla yfir fólk í nafni kvenfrelsis, femínista eða umhverfissjónarmiða?  Nei, fréttamenn eru of kurteisir við suma og grimmdin bitnar á stjórnmálamönnum...

Mér sýnist mikið af því fólki sem nú fagnar því að hætt hafi verið við klámráðstefnuna sé það sama og náði ekki upp í nef sér út af framkomu íslenskra stjórnvalda vegna komu Falung Gong á sínum tíma.  Ég veit að það er ekki hægt að líkja þessu saman en grundvallaratriðið er það sama. Eigum við að fara í það að flokka út það fólk sem okkur er samboðið? 


You can't write a fiction like that

barca_liv2Það var ljúft að vera Púlari í gærkvöldi eftir frækinn sigur Liverpool á Mývangi gegn ríkjandi Evrópumeisturum Barcelona. Sérstaklega í ljósi atburða í aðdraganda leiksins sem aðdáendur annarra liða hafa skemmt sér vel yfir.  Saga leiksins var lyginni líkust og hefði verið gerð bíómynd um æfingaferðina og leikinn hefði þessi endir þótt allt of “unreal” svo ég haldi áfram slettunum...


Liðið hélt til Portúgal í æfingaferð sem stóð yfir í viku. Stífar æfingar var sagt en helstu fréttirnar þaðan voru um síðasta kvöld þeirra þar fimm dögum fyrir leik. Þá skelltu leikmenn sér á karókí bar. Eitthvað virtist kvöldið hafa farið vitlaust í suma leikmenn og samkvæmt fréttum var golfkylfum og handjárnum sveiflað.

Craig Bellamy, sá skapgóði og fjármálasnillingurinn norski John Arne Riise deildu um lagaval í Karókí sem endaði með því að níu járni úr golfsetti Bellamy var sveiflað af miklum krafti, fyrst til að komast inn í herbergi til Riise og svo til að merkja aðeins lappirnar á honum.

Þá segja sögurnar að markvörðurinn Jerzy Dudek hafi verið handjárnaður eftir deilur við lögregluna þar í landi. Sögurnar hafa margar hverjar verið æði skrautlegar af þessum atburði.

Menn töluðu um að ferill Bellamy hjá Liverpool væri á enda, hann yrði seldur í sumar. Aðrar fréttir að hann myndi ekki spila á Mývangi. Menn veltu fyrir sér meiðslunum á Riise, þar sem lappirnar eru jú ansi mikilvægar fyrir fótboltamann.

Hins vegar voru þeir báðir í liðinu í gær og markvörðurinn Jerzy Dudek á bekknum. Og sagan var ekki á enda þar.  Eftir frekar slaka byrjun á leiknum þar sem Barcelona skoraði fyrsta markið náðu Liverpool frábærum leik.  Craig Bellamy jafnaði leikinn rétt fyrir leikhlé með skallamarki (líklega minnsti maðurinn á vellinum) og fagnaði með góðri golfsveiflu. Góður húmor hjá karlinum...

Og líkt og dramatískur endir á bíómynd var það John Arne Riise sem skoraði sigurmarkið (og það með hægri !!!!) og hver gaf sendinguna á hann?  Jú, auðvitað Craig Bellamy.

Orð Andy Gray lýsanda á Skysport voru því vel viðeigandi: “You can’t write a fiction like that”


Hlynur og HSÍ

Fór á æsispennandi handboltaleik í gær þar sem ÍBV og Grótta mættust í undanúrslitum bikarsins. Skemmst er frá því að segja að Grótta vann leikinn en það var margt athyglisvert í gangi. ÍBV tefldi fram nýjum leikmanni, skilst að hún sé frá Túrkmenistan en sem betur fer er nafn hennar ekki eins erfitt í framburði og forseta landsins. Frábær leikmaður á ferð en því miður kemur hún heldur seint til landsins fyrir ÍBV enda að litlu að keppa eftir tapið í gær. Eins vakti athygli að 16 ára stelpa, Heiða var í markinu hjá ÍBV stóran hluta leiksins og stóð sig gríðarlega vel. 

Það sem var aftur á móti kom mér mest á óvart var að sjá Hlyn Sigmarsson við varamannabekk ÍBV. Fyrr um daginn var hann dæmdur í 2 leikja bann og 100 þúsund króna sekt fyrir brottrekstur í leik ÍBV og Stjörnunnar fyrir skömmu. Líklega var sektin svona há vegna ítrekaðra "brota".

Hlynur hefur gert frábæra hluti fyrir handboltann í Eyjum síðustu ár og þá sérstaklega fyrir kvennahandboltann. Hann hefur aftur á móti átt í miklu stríði við forsvarsmenn HSÍ og kannski sérstaklega dómarapör landsins. Oft á tíðum hefur hann farið vel yfir strikið en á öðrum tímum hefur mér fundist með ólíkindum hvernig komið er fram við hann.

Hlynur hefur verið rekin út úr húsi sem áhorfandi !! Þeir sem einhvern tíma hafa farið á handboltaleiki vita að þar er ýmislegt látið flakka sem ekki er til fyrirmyndar, í hita leiksins. Hins vegar virðist Hlynur hafa svona líka sérstaka rödd að hún sker sig úr og allir dómarar landsins heyra hana. Alla vega hefur honum verið hent út úr húsi fyrir mótmæli við dómara þar sem hann var ekki einu sinni á skýrslu. Eins hef ég séð dómara stoppa leiki til þess að segja honum að setjast, þó helmingur áhorfanda á leiknum standi, þá þurfti hann einn manna að setjast.

Það má auðvitað segja að hann eigi að vera til fyrirmyndar sem forsvarsmaður félagsins en Hlynur Sigmarsson er ekki orðljótasti maðurinn innan handboltahreyfingarinnar en þó sá maður sem fer mest í taugarnar á dómurum. Gæti það verið vegna þess að hann bendir óhikað á það sem miður fer hjá HSÍ.  Þola menn þar ekki gagnrýni? HSÍ hefur verið í vandræðum undanfarin ár, deildin hefur drabbast niður hjá körlunum og margar tegundir af Íslandsmóti spilaðar.  Þó virðist núverandi fyrirkomulag vera að virka best.  Á þessum tíma hefur kvennadeildin verið þannig að tvö til þrjú lið berjast um titilinn ár hvert. Eitt þeirra hefur verið síðustu ár, ÍBV sem hefur lent í 1. eða 2. sæti nánast hvert einasta ár.  Hlynur hefur bent á margt undanfarið sem betur má fara hjá HSÍ en uppsker skammir og leikbönn.  

Nú síðast fékk hann rautt spjald fyrir að telja í leik gegn Stjörnunni. Auðvitað átti hann að virða þá ákvörðun og yfirgefa varamannabekkinn en hann er þrjóskur og lét ekki segjast. Þess vegna tafðist leikurinn um fimm mínútur. Nú er Hlynur að hætta sem formaður handknattleiksdeildar og það er ekki öfundsvert að fylgja í fótspor hans, ef einhver gerir það.  Handboltinn í Eyjum á í talsverðri tilvistarkreppu og þá sérstaklega kvennahandboltinn. Er verjandi að halda úti liði nánast algerlega byggt upp á erlendum leikmönnum? 


Hvað er satt og hvað er rétt?

Árni Johnsen skrifar tvær greinar í Morgunblaðinu í vikunni um möguleika á jarðgöngum til Eyja. Miðað við þær upplýsingar sem þar koma fram hefur hljóðið í yfirmönnum Vegagerðarinnar breyst nokkuð. Fallið hefur verið frá hugmyndum um dýrustu borun sem völ er á (og 70 - 100 milljarða króna kostnað) og fallist á rök erlendra sérfræðinga. Kostnaðartölur því undir 30 milljörðum sem var sú tala sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hafði reiknað út að væri innan marka þess sem kalla má þjóðhagslega hagkvæmt. 

Í Morgunblaðinu í dag er aftur á móti leiðrétting frá yfirmönnum Vegagerðarinnar þar sem þeir vísa á bug fullyrðingum Árna Johnsen í blaðagreinunum. 

Ægisdyr er áhugafélag um jarðgangagerð til Vestmannaeyja. Allan þann tíma sem þetta mál hefur verið í umræðunni hefur starf þeirra einkennst af fagmennsku. Þar hafa sérfræðingar í jarðgangagerð verið kallaðir til og áætlanir byggjast upp á viðurkenndum aðferðum. Það voru Ægisdyr sem fengu Hagfræðistofnun til þess að reikna út hvað göngin máttu kosta til að þau yrðu þjóðhagslega hagkvæm. Útgerðarmenn í Eyjum vilja klára rannsóknir og hafa lofað 20 milljónum í það ef ríkið kemur með fjármagn á móti. Reyndar í síðustu Fréttum dró Magnús Kristinsson tilboð þetta til baka þar sem Bakkafjara var á samgönguáætlun en ekki hugsanleg jarðgöng. Hef samt trú á því að þeir myndu leggja peninginn fram ef það kæmi yfirlýsing frá forsætisráðherra um að göng kæmu til greina ef rannsóknir sýndu fram á slíkan möguleika. 

Í minni vinnu sem blaðamaður á Fréttum sagði ég oft fréttir af þessum málum öllu saman. Auðvitað hafa verið fantatískir fylgismenn jarðganga sem og fantatískir andstæðingar hér í Eyjum. En sá sem hefur að mínu mati gengið lengst í ófaglegheitum er samgönguráðherrann okkar, Sturla Böðvarsson sem hefur alla tíð útilokað möguleikann á jarðgöngum. Til þess að kóróna þetta hefur hann vísvitandi unnið gegn Ægisdyrum.

Til að mynda hafði skýrsla Hagfræðistofnunar verið tilbúinn í nokkurn tíma áður en hún var birt. Ástæðan var sú að samgönguráðuneytið var að láta vinna skýrslu fyrir sig líka og bað um að þær yrðu birtar saman. Ægisdyr sögðu það í lagi og biðu. En loks gáfust þeir upp, höfðu samband upp í ráðuneyti og tilkynntu að skýrslan yrði birt daginn eftir en þá hafði verið boðað til blaðamannafundar. Viti menn, síðar þennan sama dag birtist í fréttunum skýrsla ráðuneytisins um 70-100 milljarða króna kostnað og ráðherrann í viðtal í kjölfarið þar sem hann sagði slíkan kostnað allt of mikinn. 

Sturla skipaði starfshóp til þess að fara yfir framtíðarsamgöngur Vestmannaeyja. Þar átti að skoða þrjá þætti, jarðgöng, Bakkafjöru eða nýtt skip til Þorlákshafnar. Þegar nefndin hafði verið skipuð og þeir rétt sestir að rökstólum birtist Sturla í sjónvarpsfréttum og sagði stefnt að Bakkafjöru, jarðgöng kæmu ekki til greina.  Til hvers að skipa starfshópinn?  

Það er fráleitt að halda því fram að í Vestmannaeyjum sé einhver sátt um Bakkafjöru. Þvert á móti skilst mér að mjög margir og þá aðallega sjómenn séu alfarið á móti slíkum hugmyndum. Ég reyndar treysti vísindamönnum í þessum efnum, þetta er hægt en spurning um hversu marga daga verður ófært þarna upp eftir?  


Málefni Vestmannaeyja rædd á Alþingi

1-2007-motmali_herjolfsÍ gær var umræða um málefni Vestmannaeyja á þingi að frumkvæði Lúðvíks Bergvins. Í sjálfu sér kom ekkert nýtt fram þar en athyglisverð nálgun Lúlla um að gjaldskrárhækkun Herjólfs éti upp ávinning Eyjamanna af matarskattslækkuninni. 

Við búum ekki við jafna stöðu, fyrirtæki hér geta ekki keppt við sambærileg fyrirtæki uppi á landi vegna kostnaðar í farmgjöldum. Á sama tíma og Sturla ráðherra segir ekki hægt að hætta við hækkun fargjalda Herjólfs er tekið upp á því að lækka gjaldið í Hvalfjarðagöngin. Hmmm, í hvaða kjördæmi eru göngin aftur?

Annars var ég ánægður að lesa leiðara Moggans í morgun. Þar er tekið undir sjónarmið Eyjamanna um að klára rannsóknir vegna jarðganga. Um sé að ræða slíkt hagsmunamál að það verði að eyða smá fjármunum í að skera úr um það.  Heyr, heyr en það vill Sturla ekki. Hann er búinn að ákveða Bakkafjöru og hana nú....

Einn aðal talsmaður jarðganga er Árni Johnsen. Að mínu mati hjálpar það ekki málstaðnum en það á svo sem ekki að skipta höfuðmáli. En gæti verið að afstaða Sturlu til jarðganga litist af afstöðu hans til Árna?  


mbl.is Gjaldskrárhækkun Herjólfs upphefur ávinning af matarskattslækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvennahandboltinn í Eyjum í vanda...sem og fleiri íþróttagreinar

Íslandsmeistarar ÍBV tapa með átján marka mun gegn Val!  Reyndar er þetta allt annað lið en varð Íslandsmeistari í fyrra og það er vandi ÍBV í hnotskurn. Það hefur smám saman fjarað undan kvennahandboltanum í Eyjum, fyrir tveimur til þremur árum voru það stelpurnar sem héldu nafni ÍBV á lofti með frábærum árangri. Nú næst varla í lið. 

Það er byggt upp á erlendum leikmönnum, ekki vegna þess að þær eru betri en heimastelpurnar, það eru fáar stelpur í Eyjum á meistaraflokksaldri að æfa handbolta. Það kemur fram í Mogganum í dag að á tímabili hafi Einar Jónsson þjálfari ÍBV setið einn á varamannabekknum. Það segir allt sem segja þarf um breiddina í liðinu. En á þá að halda áfram með liðið?

Það er spurning sem menn þurfa að spyrja sig innan hreyfingarinnar. Er það réttlætanlegt að halda úti liði sem nær eingöngu er skipað erlendum leikmönnum?  Það eru nokkur ár í að upp koma stelpur sem geta borið þetta lið uppi úr yngri flokkum. Hvað þangað til?  Á að borga stórar upphæðir til þess að halda þessu gangandi eða hreinlega draga liðið úr keppni næstu árin?  

Það var gert í kvennafótboltanum hér.  Ekki voru allir sáttir við það en rökin voru þau að það voru svo fáar stelpur tilbúnar til þess að æfa að liðið yrði skipað að miklu leyti erlendum leikmönnum. Menn treystu sér ekki í það.

Hlynur Sigmarsson hefur unnið þrekvirki fyrir handboltann í Eyjum undanfarin ár en nú virðist þetta vera að taka enda. Það er sorglegt en staðreynd engu að síður.

Breytingarnar undanfarin ár í íþróttamálum okkar Eyjamanna er umhugsunarefni. Fyrir þremur árum átti ÍBV lið í efstu deild í fótbolta og handbolta, kvenna og karlaflokki. Fjögur lið sem voru að berjast við þau bestu í landinu. Nú er kvennalið ÍBV í handbolta eina liðið í efstu deild með þeim árangri sem lýst er hér að ofan. Búið er að leggja kvennaliðið í fótbolta niður. Strákarnir féllu um deild síðasta sumar í fótboltanum og handboltastrákarnir eru í 2. deild.

Það er mín skoðun að verið er að berjast á of mörgum vígstöðum. Réttast væri að skera niður í rekstri meistaraflokks, halda úti færri liðum en betri. En hvaða liðum á að fórna? 


mbl.is Valur burstaði ÍBV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um héraðsfréttablöð og æsifréttamennsku

Margrét Rós, formaður Eyverja hér í Eyjum skrifar grein á bloggsíðu Eyverja nýverið þar sem hún fjallar um æsifréttamennsku í blöðunum tveim í Eyjum.  Ég vann sjálfur á Fréttum í nokkur ár og heyrði oft þessa gagnrýni og þá sérstaklega frá valdhöfum hvers tíma. (Á þeim tæpu sex árum sem ég vann á Fréttum voru fimm meirihlutar í bæjarstjórn Vestmannaeyja) W00t

Margrét finnst blöðin gera fréttir sem í "eðli sínu" eru jákvæðar og snúa þeim upp í neikvæðar fréttir. Fyrsta dæmið sem hún nefnir er stórskemmtilegt viðtal við gamlan Eyjamann sem flutti frá Eyjum fyrir mörgum árum og finnst ástandið hér vera orðið slæmt.  Lýsingar hans á ástandinu vöktu athygli og umræðu. En Margrét Eyverji vildi að viðtalið við hann yrði bannað!! (Eyverjar er félag ungra sjálfstæðismanna) Það væri hreinlega fáránlegt að samþykkja að birta svona frétt!  Af hverju? Eiga blaðamenn að hafa "vit" fyrir þeim sem þeir tala við?

Þetta eru fáránleg rök hjá Margréti, menn sem koma í viðtal segja það sem þeir vilja, það er ekki blaðamannana að vinsa út það sem "vit er í" og henda því sem ekkert vit er í.  (Hver segir að blaðamaðurinn sé eitthvað betri en viðmælandinn í að segja hvað er vitiborið og hvað er vitleysa?)

Hún tekur dæmi um tjaldstæðamálið og uppsagnirnar á Sambýlinu um daginn. Tjaldstæðamálið þekki ég ekki en líkt og svo mörg mál síðustu ár í bæjarstjórn Vestmannaeyja varð aukaatriðið aðalatriðið í umræðunni og blöðin endurspegla umræðuna í bæjarstjórn.  

Gagnrýnin varðandi uppsagnirnar snýr fyrst og fremst að fyrirsögninni. Það er ótrúlega oft sem menn (og konur) eru óánægð með fyrirsagnir. Stundum hef ég það á tilfinningunni að stjórnmálamenn lesi einungis fyrirsagnir og millifyrirsagnir í fréttum...slíkur er offorsinn stundum. (Á samt ekki við alla)

Þegar fréttin er lesin (og undirfyrirsögn) kemur í ljós að öllum verði boðið áframhaldandi starf. Reyndar minnkar starfshlutfallið og þá um leið launin væntanlega.  Og hvað er þá að fyrirsögninni? Átti hún að vera "Breytingar á starfshlutfalli starfsmanna Sambýlisins" eða "Vaktafyrirkomulag Sambýlisins loks orðið löglegt"  ?? 

Blöðin segja frá því sem jákvætt er að gerast í bænum. Þekki það vel frá Fréttum að þar er reynt að hampa sem flestu en auðvitað verða blöðin að segja frá því sem er að gerast og því miður þá er það oft á tíðum neikvætt. En því jákvæða er hampað í Fréttum...Skákfélagið, Leikfélagið, Viska, ÍBV og fleiri og fleiri ..... 


Borgarstefna eða byggðastefna?

Það er mjög forvitnilegt fyrir alla sem áhuga hafa á byggðarþróun (sérstaklega í Eyjum) að lesa blogg bæjarstjórans í Eyjum um opinber störf. Þetta segir allt um byggðarstefnu núverandi ríkisstjórnar. Hún er í plaggi en ekki í praktík. 

Störfum hefur skipulega verið fækkað á landsbyggðinni á vegum hins opinbera. Allt í nafni hagræðingar en í raun hefur bákn ríkisins stækkað mikið síðustu ár sem er afskaplega athyglisvert í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd þann tíma. Flokkur sem margir kusu vegna þess að hann stendur fyrir einstaklingsfrelsi og styður einkaframtakið. Hvernig væri staðan ef VG hefði verið í ríkisstjórn síðustu tólf ár?

Hefur ríkið verið að bregðast við stækkun höfuðborgarsvæðisins með því að færa störf af landsbyggðinni til Reykjavíkur?  Hvar eru þessi nýju störf á vegum ríkisins? Auðvitað í Reykjavík sem er skiljanlegt í ljósi þess að langstærsti hluti hins opinbera er í höfuðborginni. En í byggðastefnu ríkisstjórnarinnar er talað hátíðlega um að efla byggðir landsins, færa störf á vegum hins opinbera út á land.  Síðan er raunin sú að störf eru tekin af landsbyggðinni og komið fyrir í Reykjavík.  Skýrt dæmi um slíkt er lokun Loftskeytastöðvarinnar í Vestmannaeyjum.  Í nafni þróunar var henni lokað og störfin færð í Skógarhlíðina í Reykjavík.

Hvers vegna var ekki hægt að efla hana og færa jafnvel störf frá Reykjavík til Eyja?  Þetta gekk svo langt að hús eins loftskeytamannsins var keypt af hinu opinbera til þess að auðvelda honum flutning frá Eyjum.  Er þetta í lagi?

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband